Að velja og hafna lögum og reglum

Ég hef velt því mikið fyrir mér í gegnum tíðina hvort það hafi ekki áhrif á börn hvernig foreldrar fara eftir lögum og reglum sem settar hafa verið í samfélagi okkar. Maður freistast nefnilega stundum til að fara yfir götu á rauðum kalli þegar enginn bíll er sjáanlegur en ég hef lengi passað að gera það ekki þegar barn bíður á ljósi annaðhvort eitt eða með foreldri, til að auðvelda fólki aðeins lífið. Manni munar ekki svo mikið um þessar sekúndur sem maður bíður finnst mér. Viðurkenni að manni finnst maður vissulega pínu kjánalegur þegar foreldrið teymir barnið samt yfir götuna á meðan maður bíður... en hvað um það. 

Ég er mjög dugleg að fara í sund og þar er ætlast til þess að fólk baði sig án sundfata. Fullkomlega einföld og eðlileg regla að mínu mati. Og eitt af því sem manni finnst að allir færu eftir með eftirfarandi í huga: Hvað ef allir hugsuðu eins og ég og fyndist ekkert mál að sleppa því að þvo sér án sundfata? Í hverju er ég að synda? Og er ekki nóg að synda í því sem fólk ræður ekki við að fari frá því þó ekki bætist við óhreinindi sem eru fullkomlega viðráðanleg? Í dag voru tvær manneskjur sem slepptu því að þvo sér án sundfata, ein ung stelpa sem var í fylgd móður sinnar sem virtist ekki leggja áherslu á þetta og svo kona sem var með tvö börn með sér. Og þetta eru ekki langur tími sem ég eyði í klefanum á leið minni í og úr sundi.

Ég geri mér grein fyrir því að margir eru spéhræddir og feimnir og það hef ég reyndar verið líka en svona eru reglurnar og þetta venst. Mér hefur bara þótt fólk sem er rekið úr sundfötunum af baðverðinum verða fyrir meiri niðurlægingu en ég að baða mig án sundfata. Baðverðir virðast ekki reyna að gera þetta þannig að lítið fari fyrir því heldur. Sumir velta því líka fyrir sér hvað í ósköpunum viðkomandi sé að fela og veita því sérstaka athygli. 

Ég hef líka oft hugsað þetta út af útivistarreglum... eða eru það lög? Sumir (og alls ekki allir, sennilega mikill minnihluti) virðast ekki stressa sig mikið á því að fara eftir þeim og ég er þá aðallega að hugsa um skilaboðin sem börnin fá. Ef foreldrunum finnst sumar reglur ekki nógu merkilegar til að fara eftir þeim, hvernig vega og meta börn þetta þá? Mega þau ekki velja líka? One wonders... syndi syndi syndi:)


Bíddu nú hægur

Fullt af fólki mætti í dag í Reykjavík eitthvert þar sem verið var að kynna vinnu erlendis. Pólverjar voru mikið að athuga með vinnu í heimalandi sínu og... jú, tíu til fimmtán Íslendingar könnuðu möguleikann á að fá vinnu í Póllandi. En maðurinn sem stjórnaði því sagði að það sem kæmi í veg fyrir að Íslendingar fengju vinnu úti væri tungumálið, þeir héldu að þeir gætu fengið vinnu án þess að tala pólsku en það er misskilningur. Jeah baby;) Þeir þurfa víst ekki eins mikið á okkur að halda og við þurftum á þeim. 

Horfði á bjútífúl Gott kvöld síðasta laugardag þar sem Eivör (já, ég hef engan tíma til að brasa við danskt ö) var aðalgestur. Hún er yndisleg, það er ekkert flóknara. Og Jogvan kom í heimsókn og þá varð þetta náttúrulega bara yndislegra. Færeyingar eru málið. En það var samt eitt sem mér fannst pínu... ja, eiginlega sorglegt. Eivör á tvær litlar systur sem heita Elísabet María og Elínborg. Hún samdi um þær agalega krúttilegt lag og það var sýnt myndband af því þegar hún söng það og litlu systurnar voru með þeim. Eivör var farin að skæla, hún saknaði þeirra svo mikið. Hún er alltaf að spila um allar trissur og hefur lítinn tíma til fara heim. En það var í góðu lagi því systurnar voru mættar á svæðið. RÚV hafði þá komið þeim til landsins (ekki var annað að skilja) og pabba þeirra með. Ekki nóg með það heldur sagði Ragnhildur Steinunn frá því að þær hefðu sko verið í felum á Íslandi í tvo daga! Eivör spurði hvar þær hefðu nú eiginlega verið og önnur systirin sagði þá að þær hefðu verið á hóteli. Eina sem ég hugsaði var ekki: Noh, engin kreppa hjá RÚV! heldur: TVO DAGA? Hefði hún getað eytt tveimur aukadögum með systrum sínum? Var ekki hægt að taka mynd af fagnaðarfundunum tveimur dögum áður??? Það hefði meira að segja verið skemmtilegt að láta þær birtast einhvers staðar þar sem hún var að spila eða eitthvað. Auðvitað var þetta good TV býst ég við, allir grátandi og rosa gleði. En TVEIR DAGAR! Ég var bara pínu sorgmædd. Crying

Annars allt gott að frétta af okkur. Brjálað að gera þessa helgi, erum í heimaprófi í kynjafræði og ég að klára retórík-ritgerð. Og þegar svona mikið er að gera er ekkert annað í boði en að ganga hreint til verks svo ég bakaði mömmukökur. Halo Æji, ég bakaði smá í gærkvöldi var hvort eð ekki að gera neitt af viti. Hitt gengur allt vel:) Jú og svo fórum við að mótmæla í dag hérna fyrir norðan og það voru frábærir ræðumenn sem töluðu. Þeir hefðu mátt sýna meira héðan að norðan í RÚV fréttum því mér heyrðist að ræðurnar hér hafi verið miklu öflugri... að öllum ólöstuðum að sjálfsögðu svo hér sé allt pc. 

Annars bara hilsen í bili. Vona að allir hafi það gott.  


Íþróttafréttir -VARÚÐ! NÖLDUR!

Já hún Raquelita (litla systir Nenítu) var að keppa í Icefitness í dag og gær. Tók sig vel út stelpan og sennilega sú eina sem var eðlileg á litin;) Ég ætla kannski ekkert sérstaklega að nöldra yfir því að hún hafi verið sögð heita Raqueledda... en ég skil ekki svona fréttir af íþróttaviðburðum. Sko, það var sýnt frá þrautabrautinni, tvær konur að keppa og svo tveir karlar. Á meðan voru lesin upp nöfnin á þeim sem voru í fyrsta, öðru og þriðja sæti í hinu og þessu bæði í karla- og kvennaflokki, mökunarferli froskdýra og hvernig er best að steikja kleinur svo þær ekki verði seigar.

Um daginn kom frétt sem ég held að hafi verið unnin hérna fyrir norðan og þá var keppni í einhverjum greinum  í sambandi við líkamsrækt og meðan talið var upp þá kom alltaf mynd af þeim sem nefndur var, þannig að nafninu fylgdi andlit. Af hverju er ekki hægt að gera aðeins meira úr þessu, sérstaklega fyrir fólkið sem er að keppa? Þessar þrautabrautir eru nú til dæmis mjög skemmtileg sjónvarpsefni og þetta fólk leggur á sig þvílíkt mikla vinnu svo mér þætti bara allt í lagi að þegar þulurinn sagði að Raqueledda hefði verið í þriðja sæti í einhverju þá hefði mátt hafa mynd af henni með! 

Auðvitað er ég ekki með alla kostnaðarliði á hreinu þegar kemur að svona löguðu en... mér er sama. 

Svo var búið til eitthvað myndband fyrir Víkurfréttir sem er alveg afspyrnuhallærislegt. Ég veit ekki á hvað það minnir en það er næstum átta mínútur og ekki neinar upplýsingar um hver er hvað eða neitt. En gamli nágranninn minn leit rosalega vel út bara:)

Rannveig Kramer frænka mín vann keppnina 2005. Hún var ennþá sami kroppurinn þegar ég hitti hana brúðkaupi Rannveigar systur í sumar. Glæsileg stelpa (mín hét alltaf Rannveig Kramer þegar mín var í skvísuleik í gamla daga). Og Thelma Rut dóttir hennar er margfaldur Íslandsmeistari í fimleikum. Já gott fólk, ég er sannarlega ekki sú eina í þessari fjölskyldu fræg fyrir fimi og fegurð. Ég get víst alveg upplýst það hér að þegar ég var lítil stefndi ég einbeitt að því að verða næsta Nadia (rúmensk fimleikastjarna sem var fyrst allra til að fá 10,0 fyrir æfingu). Ég sá myndina um hana og var alveg heilluð. Ég æfði stíft öðru hvoru, spriklaði um í leikfimisbol (sem ég hef líklega erft frá Rannveigu frænku) og var verulega efnileg. En mér var ekki ætlaður frami í fimleikum, það var engin leið að fá almennilega þjálfun í Súgandafirði og á náði í sannleika sagt aldrei að negla æfingu sem heitir á fagmáli: handahlaupið. Líktist mest froski í einhverjum hliðartilþrifum. En hvað um það, þýðir ekki að skæla yfir því. Ég kvaldist í hljóði... þangað til ég ákvað að vera Sarah Jessica Parker í Girls Just Wanna Have Fun. Ojæja... Hér eru myndir af frænkunum fræknu:

rannveig  

sigurverarar (Large)  

1708359_thelma_fimleikar  

Takk fyrir í dag:) 


Jæjah...

...ekki mikið uppbyggilegt í gangi hér á bæ. Ég er búin að taka líklega áttatíuogfjóra Mahjong í dag. Síðustu daga er ég búin að horfa á fullt af Two and a Half Men, Grey's Anatomy, Næturvaktina og ...já, semsagt.

Búin að vera í einhverju fönki eftir að ég skilaði ömurlegu verkefni. Þetta var verkefni í mannfræðilegri greiningu og við áttum að finna eitthvað sem kalla mætti list í okkar nánasta umhverfi, útskýra hvernig það tengdist hnattvæðingu og af hverju það væri list. Ég náði ENGUM tengslum við þetta verkefni. Við fengum tvær vikur til að gera það og ég var báðar vikurnar með hugann við hvað ég gæti valið en það endaði með því að ég var að prenta út verkefnið korter í tíma og var ekkert ánægð með það. Það er skemmst frá því að segja að ég hlakka ekki mikið til að fá einkunn. Svo ég monti mig nú smá þá fékk ég nefnilega 9,7 í miðannarprófinu sem gildir 35% af lokaeinkunn. Þetta leiðindarverkefni gildir 20% svo þetta var dáltið súrt. Þetta fag er nefnilega alveg rosalega spennandi, ég hangi á hverju orði kennarans sem hefur eitthvað lag á að fá mann til að heillast með. Við erum að læra um ættflokka um allan heim og svona, ýmislegt því tengt. 

Upp úr hádegisbili fann ég að ég var aðeins að koma til, er öll að hressast. Þarf að klára ritgerð sem ég er langt komin með og eitt stykki fyrirlestur upp úr henni yfir helgina og ég er barasta kát.  

Hugrenningar mínar síðustu daga hafa verið eitthvað á þessa leið:

Auglýsingin þar sem ólétt kona þykist missa klinkið sitt til að næla í síðustu kjötbitana í kjötborðinu. Það segir margt um virkni hennar að ég man hreinlega ekki hvað er verið að auglýsa. Ömurleg auglýsing finnst mér. 

Grey's Anatomy er að breytast í ER. Rígfullorðið fólk sem getur engan veginn viðhaldið sambandi, andskotans fíflagangur. Það er eitthvað við það að hafa heyrt konuna sem skrifar þættina segja að þetta áttu upphaflega bara að vera tvær seríur... Ok, nú eru þeir semsagt bara að teygja lopann og það er farið að sjást finnst mér.

Næturvaktina var ég að sjá í fyrsta skipti núna... hólí sjitt hvað hún er fyndin. Ég orgaði úr hlátri á köflum og Hjalti spólaði til baka af því að honum fannst svo hrikalega fyndið þegar ég orgaði úr hlátri. Allir kátir Tounge Pétur Jóhann algjör snillingur! Saaaæll, eigum við að ræða það eitthvað?

Við erum nokkuð slök í kreppunni en erum samt alvarlega farin að íhuga að fara héðan úr Tröllagilinu. Hér hækkar leigan um þúsundkall á mánuði. Okkur langar náttúrulega ekki neitt að fara héðan af því að við erum búin að koma okkur svo vel fyrir en við sjáum til hvað verður.  

Eigum við að segja þetta gott í bili? Bið að heilsa bara og góða helgi!


Allt við það sama hér

Héðan er ekki margt að frétta. Allt gengur sinn vanagang. Kíktum aðeins út á lífið í gær hjónakornin og það var mjög gaman. Fórum aðeins í bæinn og það var hundleiðinlegt. Það er samt hressandi að vita að maður er að missa af nákvæmlega engu þegar maður lúrir heima hjá mjúka manninum sínum. LoL Við vorum samt í góðum félagsskap bæði tvö og það er nú fyrir öllu. Ég er bara kát annars, já og afi líka.

Mikið að gera í skólanum. Alltaf eitthvað sem bíður. Það er að venjast. Það er dagamunur á því hvað ég er dugleg að höndla álagið. Ég á það nefnilega til að bregðast við miklu álagi með að gera nákvæmlega ekki einn einasta hlut. Ég er að æfa mig í að forgangsraða og vera skipulögð. Mjög hressandi. Og mér gengur fínt í náminu. Bara búið að vera eitthvað óöryggi í mér sem ég er að reyna að hrista af mér. Ég er með einn kennara sem er svo ágætur kall (ábyggilega, leiðinlegt að vera bara neikvæð!) en notar vægast sagt vafasamar kennsluaðferðir. Hann til dæmis lét okkur fá úrlausnir úr prófi þannig að allir fóru í röð til að sækja sína einkunn og svo sat hann og talaði við hvern og einn um einkunnina. Þeir sem voru fremst heyrðu alltaf hvað hann sagði. Ég heyrði ekki einu sinni hvað hann sagði við mig, ég var næstum búin að gubba þegar ég stóð í röðinni og beið eftir að kæmi að mér. Mjög stressandi fyrirkomulag. Pínu eins og Ólíver Twist. En ég er að æfa mig í að láta þetta ekki hafa áhrif á mig. I'm breezy! Annars er ég með snilldarkennara finnst mér.    

Hér er allt á kafi í snjó og mér finnst það svo ljómandi gott. Úlpuveður dag eftir dag, alveg eins og ég vil hafa það. Mér finnst samt að við ættum að halda meira upp á það þegar veturinn gengur í garð. Gleðjast yfir því sem við höfum en vera ekki snobbandi fyrir hverri sólartýru sem dettur í hug að kíkja við hérna. Já og hana nú! Það er líka gott að eiga góðan mann. Ég lít á hann og hugsa hvað ég á sætan og góðan mann. Jú, vissulega er hann tapsár svo mann langar stundum til að kyrkja hann en hann er þakinn appelsínugulum og agalega mjúkum feldi. Svo mjúkum. Til hamingju ég! Bið annars bara að heilsa öllum og GLEÐILEGAN VETUR! W00t 

  red_cat  


Cassandra bloggar

Opnaði bloggsíðu fyrir litlu prinsessuna. Alexandra ætlar að setja inn myndir og einhverju stel ég líklega frá mömmu hennar. Við ætlum eitthvað að hjálpast að við þetta. Hún er bloggvinkona mín, tjékkitát! Smile

Kjötsúpa og svið

Já, það eru íslenskir dagar í Tröllagilinu þessa dagana. Eldaði kjötsúpu og svið svo hér er nóg æti. Það er eins og venjulega þegar hér er til kjötsúpa, ég er hálf ofan í pottinum þar til ekkert er eftir. Hér eru fleiri myndir af afastelpunni litlu sem á að heita Cassandra 'eitthvað íslenskt'.

Búin að vera lööööng vika í skólanum og brjálað að gera. Er í lotuáfanga sem nefnist Hin nýja miðlun og þar er ég búin að gera vefsíðu og á eftir að gera stuttmynd. Ef einhver hefur áhuga á vefsíðunni þá er hún hér: http://nemar.unak.is/not/ha070358/ Get ekki gert link einhverra hluta vegna. Og ég er enn að laga smáatriði en hef takmarkaða trú á að ég haldi þessu áfram nema ég stofni hljómsveit eða aðdáendaklúbb. Hver veit Tounge Við höfum svæðið á meðan við erum í skólanum. En mikið er gaman að föndra í tölvunni.

Nenni annars ekkert að blogga sko. Bara rólegt laugardagskvöld. Lærðum saman hérna í allan dag og erum núna að horfa á sjónvarpið. Horfðum með öðru auganu á þáttinn hennar Ragnhildar Steinunnar og mér fannst það eiginlega eins og að vera í leiðinlegu partýi. Það var reyndar gaman að heyra Daníel Ágúst og Björn Jörund syngja en restin fannst mér ekki skemmtilegt sjónvarpsefni. Bið ég þá frekar um Á á á tali hjá Hemma Gunn!

Oooooooooooog Cassandra:

  baby 024

baby 025  


Hjalti er orðinn afi!!! :)

Lilla Alexöndru og Christoffersdóttir

Lilla

Lilla  

TIL HAMINGJU ALLIR! :-D 

Já, og hún var 3400 gr og 48 cm löng og fæddist kl 15.58 að staðartíma, mátuleg barasta:)

Prinsessumynd:)

Alexandra og bumbukríli

Nú fer alveg að líða að því að Hjalti verði afi og hér er litla Hjaltadóttir kasólétt. Þetta er glæný mynd, tekin af mömmu hennar (og tilvonandi ömmu) fyrr í dag og svo rænt af bloggsíðunni hennar fyrir mjög stuttu síðan. Ætla að reyna að fara reglulega í ránsferðir núna þegar er að bresta á með afabarni. Eins ósmart og það nú er þá er ómögulegt að allir hérna á klakanum séu algjörlega óupplýstir. Og við verðum svo að leggjast á eitt og gera okkar besta til að litla krílið verði ekki Norsari út í gegn. ÁFRAM ÍSLAND! Annars allt við það sama hjá okkur, mikið að gera í skólanum og við gerum lítið annað en að læra. Æji, upplausnin er ekki frábær en þetta verður að duga. Hilsen í bili!


Næsta síða »

Höfundur

Sigrún Magnúsdóttir
Sigrún Magnúsdóttir
Það er komið úlpu (og húfu) veður á Akureyri! Veeeeei:)
Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Fólk

My family

Fjölskyldumeðlimir nær og fjær

Smáfólkið

Börnin

Ýmsir skemmtilegir

Gömlu vinirnir að vestan o.fl.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 34578

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband